Eitt get ég þó gert og það hefur alltaf tekist vel (ókei, nema einu sinni) - hrökkbrauð!
Hrökkbrauðið hrjúfa
1 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
1 dl hörfræ
1 dl sesamfræ
1 dl gróft haframjöl
3½ dl spelthveiti
1¼ dl olía
2 dl vatn
2 tsk. salt
"Blandið öllu saman í skál og hrærið þar til deigið er vel blandað (linur massi). Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og helminginn af deiginu á pappírinn, setjið bökunarpappír yfir deigið og fletjið út með kökukeflinu. Helmingurinn af deiginu passar á u.þ.b. eina bökunarplötu. Gerið það sama við hinn helminginn af deiginu. Skerið deigið í þá stærð sem þið viljið hafa kökurnar í áður en bakað er.
Bakist í 10-15 mín við 200 gráður eða þar til hrökkbrauðið er stökkt. Geymið hrökkbrauðið í loftþéttu boxi til að það verði ekki seigt. Það er gott að bæta kúmeni í fræblönduna."
Ætli það séu ekki um tvö ár síðan ég rakst á þessa uppskrift í einhverju viðtali við Jónu Hrönn Bolladóttur, prest. Þar dásamaði hún þessa uppskrift svo mikið að ég ákvað að prófa. Ég fór í búð til að kaupa inn í brauðið en nennti ekki og tímdi ekki að kaupa öll þessi fræ þarna svo ég stökk bara á einhverja "fimm korna blöndu" í staðinn. Þá notaði ég bara fjóra desilítra af henni í stað þess að nota fjóra desilítra af fjórum mismunandi frætegundum. Og oj bara hvað hrökkbrauðið var vont. Eða ekki vont, það var frekar bara "ekkert gott" eins og mamma mín og Jóhann minn orðuðu það. Þá ákvað ég að þetta væri ömurleg uppskrift og endurtók ekki leikinn í þónokkurn tíma.
Svo kom sá dagur að ég ákvað að gefa henni annan séns og keypti þá öll fræin í von um að hún yrði skárri. Ég fylgdi uppskriftinni alveg og notaði einhverja fína ólífuolíu í hana. Þá varð hrökkbrauðið miiiiklu betra. Fimm korna blandan var greinilega ekki málið. Síðan þá hef ég gert þetta hrökkbrauð mörgum sinnum og hef því nokkrar athugasemdir til viðbótar við uppskriftina:
- Ég hef ekki sett kúmen í þetta, mér finnst þetta alveg nógu gott án þess.
- Það skiptir miklu máli að nota góða olíu í hrökkbrauðið. Ég hef yfirleitt notað þessa frá Sollu sem er á myndinni eða ólífuolíu frá Himneskri hollustu. Það finnst mikill bragðmunur ef maður notar eitthvað drasl eða til dæmis einhverja blöndu af þremur mismunandi olíum (þegar allt er að klárast), ekki gera það.
- Saltið er líka svolítið mikilvægt, ég hef lent í því að gleyma að setja það í og þá stráði ég bara smá salti yfir þegar ég tók brauðið úr ofninum, það er ekkert verra.
- Ég þarf oftast að baka þetta lengur en í 15 mínútur en það gæti líka verið af því ofninn á mínu heimili er svolítið leiðinlegur.
- Ég baka þetta helst ekki lengur en þar til þetta hefur aðeins brúnast á köntunum. Það verður að vísu svolítið seigt en mér finnst það allt í lagi. Ef ég baka lengur þá kemur bara hálfgert brunabragð af hrökkbrauðinu og enginn vill borða það.
- Ég prófaði núna síðast að skipta út helmingnum af speltinu fyrir hveitiklíð, það var bara fínt.
- Það skiptir ekki neinu einasta máli hvort maður notar "gróft haframjöl" eða bara ósköp venjulegt Sol Gryn.
- Munið að skera deigið áður en það er bakað. Mér finnst þægilegast að gera það með pítsuskera.
- Ég mæli síður með að kaupa graskersfræin (þessi stóru grænu) frá Sollu. Ég mæli frekar með að kaupa þessi frá Góðu fæði (þarna vörurnar með græna límmiðanum). Sollufræin verða til dæmis gul þegar þau bakast, sjá mynd, og bara ekki eins bragðgóð finnst mér. Ég kaupi hin næst!
hldr
Engin ummæli:
Skrifa ummæli