- VAKNA/SOFNA: Ég vaknaði alltaf milli 7 og 9 en átti stundum erfitt með að standa við það að fara að sofa fyrir miðnætti - 1 stig
- HREYFING: Ég fór í sund á þriðjudegi, ræktina á miðvikudegi, sund á föstudegi og ræktina á laugardegi - 2 stig
- MATARÆÐI: Ég stóð mig ágætlega í þessu, borðaði ekkert brauð en hefði mátt borða svolítið hollara og meira af grænmeti og ávöxtum - 1 stig
- VATN: Hér stóð ég mig ekki nógu vel, þarf að bæta mig helling í þessu! - 0 stig
- SKÓLI: Þarf að bæta mig í lestrinum en var mjög dugleg að þýða gotnesku - 1 stig
- FÖT/SKART/SNYRTIDÓT: Ég var voða dugleg að sinna þessu, fór í eitthvað á nánast hverjum degi sem var lítið eða ekkert notað, var mikið með varalit eða augnblýant og skartgripi - 2 stig
- NAGLALAKK: Smellti á mig naglalakki á fimmtudag og föstudag - 2 stig
- SKIPULAG: Þetta gekk vel, fyllti vel út í dagbókina mína og settist líka niður á kvöldin og fór yfir markmiðin sem ég hafði sinnt yfir daginn - 2 stig
- ÖÐRUVÍSI: Æi nei, hér gerði ég ekkert - 0 stig
- BLOGG: Fimm blogg, mér finnst það bara ansi fínt - 2 stig
Já, ég er bara sátt við þetta. Þarna voru tvö markmið sem gáfu mér engin stig og ég ætla því að einbeita mér vel að því að vinna í þeim í þessari viku. Svo vil ég auðvitað rífa öll markmiðin upp í tvö stigin!
Batnandi fólki er best að lifa og svona get ég fylgst vel með því hvað ég stend mig vel. Áfram með mig!
Ég læt eina mynd af Eiffel-turninum fylgja af því hann er fallegur og af því mig dreymir um Parísarferð. Þyrfti kannski að læra að segja meira en merci og bonjour til þess að geta spjarað mig betur þar en síðast. Eða bara að fara til Ítalíu, mér finnst skemmtilegra að segja buongiorno. Jæja, bless.
hldr

Engin ummæli:
Skrifa ummæli