EN - nú hef ég fundið lausn á þessu vandamáli. Raunar líka á vandamálinu þegar bananinn er orðinn svo þroskaður að maður hefur ekki minnstu lyst á honum. Ég einfaldlega breyti banananum í smákökur!
Þessi bananasmákökutilraunastarfsemi mín hefur nú staðið yfir í u.þ.b. ár. Ég sá þessa hugmynd fyrst á Pinterest en málið er að Pinterest lýgur stundum svolítið mikið (bendi á vefsíðuna www.pinterestfail.com máli mínu til stuðnings). Pinterest hélt því fram að það ætti að duga að bæta við sesamfræjum, skera út litlar kökur og bingó - bananakex. Nei, nei, nei, það gekk sko aldeilis ekki. Útkoman varð eitthvað rugl sem á ekki skilið að ég eyði frekari orðum í það.
Nú hef ég prufað mig áfram og fundið leið til að fá algjört gúmmulaði út úr skemmda banananum. Hún er algjört slump en samt frekar áreiðanleg. Ég stappa einn banana í klessu og bæti svo við haframjöli og kókos. Svo bæti ég við aðeins meira haframjöli, ég hef nefnilega komist að því að listin í þessu er að hafa þetta ekki of blautt, því bananinn gufar ekki upp. Þegar ég er komin með þykka stöppu af banana, kókos og haframjöli móta ég litlar kökur á bökunarplötu og baka þar til þær hafa aðeins brúnast á köntunum.
Svona lítur þetta síðan út eftir baksturinn. Ég hef líka gert þetta með hörfræjum, sem er ekki síðra. Þessar á myndinni poppaði ég hins vegar ærlega upp, ég átti nefnilega bara hálfan banana svo ég bætti við einni skeið af hnetusmjöri, trönuberjum og stráði graskersfræjum ofan á. Já og svo er þetta bara undirskál sem kökurnar eru á, svo þær eru frekar litlar. En þetta var líka bara hálfur banani, það kemur meira úr heilum!
hldr

Úúúúú! Sniðugt! Kv. Þorbjörg
SvaraEyðatakk fyrir hugmyndina elsku hildur! núna þarf ég ekki alltaf að gera bara bananabrauð úr öllu skemmdu bönununum ;)
SvaraEyðaEkki málið, þetta er nefnilega margfalt minna vesen heldur en brauðbakstur, og ekki síðra á bragðið :)
SvaraEyða